Hero Image
4 May 2022
Gullteigi á Grand Hótel , Iceland
Loftslagsmót 2022

Loftslagsmót 2022

Stefnumót fyrirtækja og stofnana um nýsköpun og lausnir á sviði loftslagsmála.


Loftlagsmótið, vettvangur fyrir fyrirtæki og aðra aðila í nýsköpun, fer fram þann 4.maí næstkomandi og verður haldið í Gullteigi á Grand Hótel. 

Loftlagsmótið 2021 heppnaðist einstaklega vel. Þar voru um 100 fundir haldnir með 90 stofnunum og fyrirtækjum. 

Í ár munum við bjóða upp á örerindi frá stuðnings og styrktarumhverfinu auk þess sem Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra loftslagsmála mun ávarpa gesti. Að því loknu eiga fyrirtæki í nýsköpun og í grænum lausnum örfundi til að ræða þennan sífellt mikilvægari málaflokk. Aðilum gefst þarna tækifæri á að bóka stutta fundi (15 mínútur) með öðrum aðilum, fyrirtækjum, hugmyndasmiðum, stofnunum eða öðrum. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við loftslags- og umhverfisvænni rekstur.

Dæmi um umfjöllunarefni að lausnum og/eða því sem óskað er eftir getur verið  
allt frá betri aðferðum í flokkun, yfir í reiknivélar kolefnisspors, stefnumótun í umhverfis- og loftslagsmálum, lágmörkun úrgangs, rafrænt bókhald, kolefnisbókhald, umhverfisstjórnun, vottaðar byggingar, nýsköpun, sjálfbærar fjárfestingar, ráðgjöf í tengslum við hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að umhverfisvænni rekstri.

    DAGSKRÁ 

    08:30     Húsið opnar Kaffi og léttur morgunverður 
    09:00     Ávarp frá ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála og örerindi frá stuðnings- og styrkjaumhverfi 
    09:30    Stefnumót hefjast. 15 mínútna fundir fara fram í 3 klst. 
    12:30 Stefnumótum og dagskrá lýkur 

    Hverjir ættu að skrá sig og taka þátt?

    • Fyrirtæki sem leita lausna að áskorunum á sviði umhverfis og loftslagsmála (skrá undir Request) - óska eftir fundum með fyrirtækjum sem t.d. geta boðið upp á hugsanlegar lausnir og/eða ráðgjöf. 
    • Fyrirtæki með lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála (skrá undir Product) – óska eftir fundum með fyrirtækjum sem leita að þeim lausnum. 
    • Fyrirtæki í vöruþróun - sem vilja funda með aðilum til að ræða þróun, nýsköpun innan greinarinnar og/eða hugsanlegt samstarf (geta skráð undir Request og Product)

    Loftslagsmótið verður haldið á Grand Hótel þann 4.maí kl. 8.30-12.30

    Allir geta séð alla þátttakendur og skráningar óháð því hvort viðkomandi hafi skráð sig eða ekki. 

    Viðburðurinn er haldinn af Grænvangi, RANNÍS, Festu og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

    Nánari upplýsingar veita Birta Kristín Helgadóttir á birta@green.is og Katrín Jónsdóttir á katrin.jonsdottir@rannis.is 

    Registration
    Closed since 4 May 2022
    Location
    Gullteigi á Grand Hótel , Iceland
    Organised by