Hero Image
4 May 2022
Gullteigi á Grand Hótel , Iceland
Loftslagsmót 2022

Loftslagsmót - Hvernig virkar það?

Loftslagsmótið er vettvangur fyrir aðila og fyrirtæki til að hittast á snörpum fundum til að ræða umhverfis- og loftslagstengdar lausnir fyrir verkefni og rekstur fyrirtækja. Fljótleg og þægileg leið til að hitta mögulegan samstarfsaðila.

Hver fundur er 15 mínútur og fara fundirnir fram milli kl. 9:30-12:30.
15 mínútur eru fljótar að líða, en þær eru nóg til að búa til fyrstu tengsl sem má síðan byggja ofan á síðar.

Markmiðið er að hvetja fyrirtæki til dáða og stuðla að bættum, jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja, til þess að draga úr losun.


1) Skráning

  • Skráning fer fram með því að smella á græna takkann á forsíðunni "Register now"

2) Skrá prófíl þinn og vöru (Product) eða verkefni/áskorun (Request)

  • Skráðu upplýsingarnar um þig og þitt fyrirtæki eins vel og þú getur.
    • Settu allt fram á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.
    • Þinn prófíll ætti að lýsa hver þú ert (þitt fyrirtæki), hvað þú hefur uppá að bjóða/leitar eftir og hverja þú vilt hitta.
    • Góður prófíll skiptir sköpum hér.
    • Þegar þú hefur stofnað aðgang færðu upp síðuna þína. ATH að neðst á miðri síðunni þinni þarftu að skrá undir  Marketplace Opportunities - þú skráir í: 
      • Product ef þú ert með vöru eða þjónustu í boði eða til þróunar.
      • Request ef þú leitar að lausn hvort sem er ákveðinni vöru/þjónustu/ráðgjöf eða ef þú ert með áskorun sem þú athugaa hvort annað fyrirtæki hefur hugsanlega lausn á, eða getur þróað í samvinnu við þitt fyrirtæki.
  • Góð skráning í Marketplace er grunnur fyrir því að fá fundarbeiðnir og að aðrir samþykki fundarboð frá ykkur.

  • 3) Skoða þátttakendur (Participants) og verkefni (Marketplace)

    • Skoðaðu áhugaverð tækifæri, fyrirtæki/stofnanir og vörur/lausnir/þjónustu. Smelltu á til að sjá nánar viðkomandi.

    4) Senda og svara fundarbeiðnum

    • Skoðaðu reglulega þátttakendur (og nýja) og verkefni þeirra, og senda fundarbeiðni á þá aðila sem þú vilt funda með á mótinu. Gott er að skrá hvers vegna þú vilt hitta viðkomandi en það eykur líkur á að fundurinn verði samþykktur
    • Samþykktar fundarbeiðnir koma sjálfkrafa inn á tímaáætlun þína. 
    • TIP: Sækið "b2match" snjallforritið fyrir farsíma til að halda utan um 1.1 fundina þína í símanum!
      • Yfirlit yfir fundina þína og fundarbeiðnir finnurðu undir "Meetings" (efst á gráu stikunni)
      • Fundarbeiðnum verður að svara, að öðru leyti verður ekkert af fundum. 

    Reglur varðandi bókanir

    • Allir skráðir aðilar geta óskað eftir fundum með öllum öðrum skráðum aðilum. 
    • Samþykkja þarf fundi til að þeir komi inn í dagskrá þína yfir fundi. 

    5) Loftslagsmótið og áminning

    • Daginn fyrir Loftslagsmótið færðu tölvupóst með yfirliti yfir fundina þína sem munu eiga sér stað 4.maí 2022.
    • Þú sækir síðan dagskrána þína í  "b2match" snjallforritinu  sem heldur utan um 1.1 fundina þína í símanum!


    Hvernig fara örstefnumót fram? Hér er sýnishorn af fundum á Nýsköpunarmótinu sem haldið var 3. október 2019



    Registration
    Closed since 4 May 2022
    Location
    Gullteigi á Grand Hótel , Iceland
    Organised by